| Management number | 220506487 | Release Date | 2026/05/03 | List Price | $8.62 | Model Number | 220506487 | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Category | |||||||||
Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja. Read more
| ISBN13 | 978-9979355137 |
|---|---|
| Language | Icelandic |
| File size | 2.6 MB |
| Page Flip | Enabled |
| Publisher | Forlagið |
| Word Wise | Not Enabled |
| Print length | 176 pages |
| Accessibility | Learn more |
| Publication date | February 26, 2026 |
| Enhanced typesetting | Enabled |
If you notice any omissions or errors in the product information on this page, please use the correction request form below.
Correction Request Form